Ég ætla aðeins að tala um festingar á skotlokkum, sem kallast yfirleitt “butterfly back” eða fiðrildafestingar. Þessar festingar eru reyndar á allskonar eyrnalokkum úr ýmsum verslunum og oft er fólk með slíkar festingar í grónu gati án vandræða nema ef lokkurinn og/eða festingin er úr einhverjum vafasömum málm.
MIKILVÆGT: Góðir gatarar nota hvorki götunarbyssur né skotlokka.
Yfirleitt þegar ný göt eru með svona festingu er það vegna þess að götin voru gerð með götunarbyssu. Skotlokkar eru ekki í góðum gæðum, málmurinn er ekki upp á marga fiska og yfirborðið er illa pússað svo bakteríur safnast í rispum, og rispurnar erta gatið einnig innan frá. Festingarnar klemmast upp við eyrnasnepilinn og gefa ekkert pláss fyrir bólgumyndun, þær flækjast auðveldlega í hári og óhreinindi byggjast auðveldlega upp. Það er ástæða fyrir því að við forðumst þessa lokka!

Hefðbundinn skotlokkur
Það eru síðan sumir gatarar sem gera göt með nál en setja síðan örþunnum lokk í lélegum gæðum með fiðrildabaki í gatið og kalla það gott, og það er alls ekki í lagi. Lokkar sem henta í gróin göt og eru með fiðrildabaki eru oft aðeins 0.7-0.8 mm á þykkt sem er alls ekki málið í ný göt, en því miður sér maður það stundum.
Lokkar með fiðrildafestingu eiga sinn tilverurétt og meira að segja er hægt að kaupa þá í hæsta gæðaflokku frá til dæmis Anatometal. En ég mæli ekki með því að hafa þá í nýjum og gróandi götum af ástæðunum hér að ofan.